FRÍ SENDING UM LAND ALLT ÞEGAR VERSLAÐ ER FYRIR 12.000 KR. EÐA MEIRA.
KÉRASTASE GENESIS FONDANT RENFORCATEUR HÁRNÆRING
KÉRASTASE GENESIS FONDANT RENFORCATEUR HÁRNÆRING
10.490 kr. Original price was: 10.490 kr..8.917 kr.Current price is: 8.917 kr..
Styrkjandi hárnæring sem vinnur á móti hárlosi í náttúrulega veiku hári sem á það til að brotna og falla
Kremkennd blandan verndar hárið gegn því að brotna og yfirbragðið verður létt.
Blandan vinnur að því að styrkja trefjarnar og auka náttúrulegt viðnám þeirra og draga þannig úr líkum á hárlosi.
Hárnæringin, sem inniheldur blöndu af alpafífli og engiferrót, mýkir hárið samstundis, styrkir og mýkir trefjarnar um leið og þær fá djúpa næringu án þess að hárið þyngist.
Hárið verður allt meira glansandi og sterkara.
Aðalinnihald:
Einstök blanda af engiferrót og alpafífli.
Engiferrót er þekkt fyrir þann eiginleika að vernda hárið fyrir daglegum utanaðkomandi umhverfisáhrifum.
Frumur úr alpafífli eru þekktar í húðumhirðu vegna andoxandi áhrifa sinna og varðveislu collagens. Alpafífillinn er fær um að standast erfiðustu aðstæður.
Þessi hárnæring er svo mild að hún hentar til daglegra nota og virkar best ef hún er notuð með Bain Hydra-Fortifiant eða Bain Nutri-Fortifiant.
Notkun:
Berið lítið magn í nýþvegið, handklæðaþurrt hár.
Nuddið frá miðju hár og út í enda en forðist að bera í rótina til að halda lyftingunni.
Látið bíða í 2-3 mínútur.
Skolið með nægu vatni.
Magn: 200 ml.
- Awarded by Glamour.com “The Best Pro Conditioner for Damaged Hair” in “The Best Products For Straight Hair of 2020”.
Þér gæti einnig líkað við…
AFGREIÐSLUTÍMAR
Mánudaga – föstudaga:
kl 11:00 – 18:00
Laugardaga:
12:00 – 16:00