FRÍ HEIMSENDING UM LAND ALLT ÞEGAR VERSLAÐ ER FYRIR 12.000 KR. EÐA MEIRA.

FRÍ SENDING UM LAND ALLT ÞEGAR VERSLAÐ ER FYRIR 12.000 KR. EÐA MEIRA.

Kérastase við hárlosi

Yfir 88% kvenna segjast hafa glímt við hárlos á lífsleiðinni og af þeim eru um 40% í kringum þrjátíu og fimm ára aldurinn.
Tilfinningarnar sem vakna hjá konum við hárlosi eru margvíslegar og áhyggjur séu algengastar.

Um 90% þeirra sem upplifa hárlos meðhöndla það ekki en það er þó hægt,“
„Spurðar af hverju sögðu konurnar margs konar tilfinningar sem fylgdu hárlosinu, sumar sögðust leiðar, aðrar fundu fyrir kvíða og áhyggjum og skammast sín og margar vissu ekki hvert best væri að leita og fá upplýsingar.“

En hvað er hárlos?

Lífsferill hárs er einfaldur, það vex, dettur af og nýtt hár tekur að vaxa.
Langoftast detta hárin af jafnt og þétt og vaxa sömuleiðis.
En hárlosi er almennt hægt að skipta í tvennt, það að missa hár og fá það aftur og/eða missa hár og fá það ekki aftur, það kallast skallamyndun.
Þættir sem ráða hárlosi geta verið margs konar s.s. erfðir, hormónavandamál og öldrun.
Eins geta áföll valdið skyndilegu hárlosi, slys og ýmsir sjúkdómar og meðferðir við þeim, t.d. geisla- eða lyfjameðferðir.

Við mikil veikindi eða álag getur hárlos orðið meira en ella.
Þetta sést hjá þeim sem hafa veikst alvarlega.
Hárlosið verður þó oft ekki beint í kjölfar veikindanna, heldur 3-6 mánuðum seinna.

Dæmi um kvilla sem geta valdið hárlosi er járnskortur og truflun á starfsemi skjaldkirtils.
Öðru máli gegnir ef hárlos dreifist ójafnt um höfuðið, þannig að há kollvik myndist eða skallatungl.
Í þeim tilvikum ætti viðkomandi að leita læknis og ef um konu er að ræða að láta athuga hormónastarfsemina.
Þá getur hárlos verið aukaverkun sumra lyfja.

Hárlos og meðganga

Hárlos margra tengdist lífsstíl og öðru tengdu lífsferlinum eins og meðgöngu.
Hárið er oft óvenjuþykkt og ræktarlegt á meðgöngu en u.þ.b. hálfu ári eftir fæðingu verður mikið hárlos og hárið rytjulegt.

Breytingar á hormónum og þá sérstaklega estrógeni sem hefur þau áhrif að engin hár falla heldur bætast í sífellu við ný í hársverðinum meðan á meðgöngu stendur.
Eftir fæðingu ganga þessi hormón til baka og við missum mikið af meðgönguestrógeninu.
Það góða við þessa tegund af hárlosi er að hún er tímabundin.

Hægt er að örva hárvöxt

Hágæðahárvörurnar Kérastase Paris sem eru í eigu L´Oréal Group setti nýverið á markað sérhannaða línu sem hjálpar til við að sporna gegn hárlosi.

Línan samanstendur af sjampói, næringu, djúpnæringu og sex vikna meðferð í formi dropa.
Þeir eru notaðir heima fyrir til að vinna á hárlosi og styrkja hár og hársvörð sem er það mikilvægasta í meðferðinni samhliða notkun á sjampó og næringunni.

Droparnir eru notaðir daglega og settir í hársvörðinn til að koma í veg fyrir að kollagen herðist og að hárið falli.
Einnig inniheldur línan hitavörn til að verja hárið.

Rannsóknardeild Kérastase sýndi fram á að með því að meðhöndla hárlos og nota línuna saman fundu 93,3 % þátttakenda mikinn mun.
Hárið brotnaði síður og hárlos varð minna.“

Hér finnur þú vörur sem gæti hjálpað þér.
https://sapa.is/voruflokkur/vorumerki/kerastase/genesis/

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping