FRÍ HEIMSENDING UM LAND ALLT ÞEGAR VERSLAÐ ER FYRIR 12.000 KR. EÐA MEIRA.

FRÍ SENDING UM LAND ALLT ÞEGAR VERSLAÐ ER FYRIR 12.000 KR. EÐA MEIRA.

ÖLDRUN HÁRSVARÐAR

Kérastase við öldrun í hársverði

Það er sameiginleg löngun okkar allra að vera að eilífu ungleg.
Er það mögulegt? Tímalega séð, kannski.
En þetta er ástæðan fyrir því að við njótum daglegra stunda þar sem við varðveitum útlit okkar.
Því þær færa okkur áfram veginn í lifinu jafnvel þótt við lítum út nánast eins og tíminn standi í stað.
Fyrir einni kynslóð fóru konur að vera meðvitaður um öldrun þegar þær sáu fyrstu merki hennar.
Í dag eru konur klókar og hugsa til framtíðar, setja hárumhirðu í sama forgang og húðumhirðu sem uppsprettu eilífrar æsku.
Núna vitum við að ef við varðveitum hár okkar frá unga aldri hjálpar það okkur að líta út og líða eins og best verður á kosið.
Heilbrigt og lokkandi hár er markmið sem við getum unnið að – og náð – á hverjum degi.
Því öldrun snýst ekki lengur um árin sem líða heldur dagana.

Konur fara að grafa eftir vörum sem varðveita æskuna í kringum 26 ára aldur, en það er helmingi minni aldur en áður var.
Til að svara því ákalli hefur Kérastase greint 6 stig öldrunar hárs og hársvarðar og ræðst gegn hverju og einu þeirra með öflugri blöndu úr endurgerðri línu Chronologiste.

Endurnærir hárið

Chronologiste hefur lengi verið frumkvöðull í að stuðla að hári með auknu lífi og endurvakningu þess.
Kérastase hefur enn einu sinni sameinað þróaða tækni og lúxus fyrir skynfærin og útkoman er endurbætt hárumhirðulína sem endurnærir hárið eins og best verður á kosið, frá hársverði að enda.
Chronologiste, sem er með dásamlegri áferð og frískandi ilmi, veitir konum unaðslega upplifun sem hjálpar þeim að öðlast eins fallegt og líflegt hár og mögulegt fyrir daginn í dag, morgundaginn og framtíðina.
Hinar 6 víddir öldrunar hársvarðar

Hormónabreytingar:
Hægja á framleiðslu hárfitu og endurnýjun fruma.
Afleiðingin er flasa, óróleiki og hrjúf áferð hársvarðarins.

Vidkvæmni:
Eftir því sem leðurhúðin þynnist og varnir húðarinnar veikjast geta utanaðkomandi þættir haft áhrif.
T.d. mengun sem getur valdið roða, eymslum og kláða í hársverðinum.
Um leið verður hann smám saman viðkvæmari.

Dauft yfirbragð:
Skortur á náttúrulegri hyaluronic sýru og framleiðslu collagens ásamt skaðlegum áhrifum útfjólublárra geisla geta valdið minni teygjanleika í hárverðinum.
Húðin verður þá meira krumpuð og mýkri og það getur valdið óþægindum.

Lífleysi:
Skortur á vítamínum, álag og áhrif útfjólublárra geisla geta valdið því að hártrefjarnar verða líflausar með tímanum.
Lítið endurkast ljóss getur leitt til minna lífs og minni náttúrulegs gljáa.

Brothætt hár:
Með tímanum verða hártrefjarnar meira gljúpnar og þurrar og þá verður ysta lagið veikara.
Líklegra er að hárið brotni og það verður harðara viðkomu.

Þynning:
Með hormónabreytingum verður hársekkurinn minni um leið og magn próteins í trefjunum minnkar. Hárið verður flatara og slappara um leið og það skortir líf og erfitt er að móta það.

Hér finnur þú KÉRASTASE  CHRONOLOGISTE vörurnar.
https://sapa.is/voruflokkur/vorumerki/kerastase/chronologiste/

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping