FRÍ HEIMSENDING UM LAND ALLT ÞEGAR VERSLAÐ ER FYRIR 12.000 KR. EÐA MEIRA.

FRÍ SENDING UM LAND ALLT ÞEGAR VERSLAÐ ER FYRIR 12.000 KR. EÐA MEIRA.

Hárþvottur

Hvernig er best að halda hári hreinu og heilbrigðu

Í hugum margrar er hárþvottur svo sjálfsagður hlutur að fólk telur það ekki skipta neinu máli hvaða hárþvottaefni eru notuð. 
Því miður eru það þó nokkrir sem bera ekki meiri umhyggju fyrir hári sínu en það að þeir nota jafnvel sápuna á sundstöðum til hárþvottar. 
Það sem veldur því er sá útbreiddi misskilningur að hárþvottaefni séu öll eins og aðeins til þess að þvo burt óhreinindi.

Neytendasamtök um allan heim hafa  lent í þeirri gryfju að ráðleggja fólki að nota bara þau efni sem eru ódýrust.
Til eru þeir sem vilja vekja á sér athygli með því að þvo sér ekki um hárið svo árum skiptir og mæla með því að nota ekki hárþvottaefni, því að það sé svo ónáttúrulegt að nota þau.
Oft er því erfitt að gera sér grein fyrir því hver hafi á réttu að standa. 
Því er ekki úr vegi að athuga þá fræðilegu þætti sem vísindamenn leggja til grundvallar þegar hárþvottaefni eru metin.

Rakagefandi

Þó að hárið sé dautt þegar það kemur út úr húðinni þá er ekki þar með sagt að það geti ekki orðið fyrir eðlis og efnabreytingum.  
Hár er til dæmis mjög viðkvæmt fyrir raka.  
Hér áður fyrr var hár notað í rakamæla til að mæla raka í timbri.  
Hár sem er í góðu ástandi getur lengst um 30 % við raka, þegar það þorna síðan aftur þá dregst það saman  í sömu lengd.  
Í þurru loftslagi eins og er hér á landi sérstaklega um vetrartímann, er nauðsynlegt að hugsa um rakagefandi efni fyrir hárið.

Mikill þurrkur í hársverði og hári er oftast nær rakaskorti að kenna.  
Það er því ekki undarlegt að mest seldu hársnyrtivörurnar hér á landi eru rakagefandi.
Það má í reynd segja að rakagefandi efni séu það sem kalla má normal við íslenskar aðstæður.  
Það hafa orðið byltingakenndar breytingar á framleiðslu á hársnyrtivörum á  síðasta áratug.  
Þessar breytingar hafa fyrst og fremst komið fram hjá þeim rannsóknarfyrirtækjum sem sérhæfa sig í að framleiða hársnyrtivörur fyrir hársnyrtifólk.

Hreinlæti

Hreinlæti er hluti af heilsuvernd.  
Hárþvottaefni verða að fjarlægja óhreinindi, dauðar húðfrumur og fitu úr hárinu, sem geta verið gróðrastía fyrir gerla.  
Óþægileg lykt af óhreinu hári stafar að mestu leiti vegna þessara gerla.  
Hárið er öðruvísi að uppbyggingu heldur en aðrir líkamshlutar, að því leiti að það getur ekki endurbætt sig.  
Gott ástand hárs er undir því komið, hvernig það losnar við gerla og óhreinindi.  
Séu gerlar og óhreinindi látin óáreitt í hárinu getur það valdið hársvarðarsjúkdóm.  
Hársjúkdómafræðingar segja að kvillum í hársverði hafi fækkað mikið síðan fólk byrjaði að þvo sér um hárið vikulega eða oftar.

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping